
STRANDABANDALAGIÐ
Strandabandalagið er stjórnmálaafl í Strandabyggð, stofnað í aðdraganda kosninga 2022 af fólki sem hefur óbilandi trú á samfélaginu og tækifærum Standabyggðar til að vera áfram leiðandi þjónustukjarni á Ströndum og
norðanverðum Vestfjörðum.
Við horfum á heildarhagsmuni íbúa og samfélagsins sem leiðarljós í okkar málefnavinnu. Við höfnum sérhagsmunahyggju.
Við vinnum fyrir Strandabyggð!
Strandabandalagið hefur áherslur. Við viljum skoða alla möguleika til framþróunar í atvinnumálum, menntamálum, samfélagsmálum, o.s.frv. Við erum þeirrar skoðunnar að staða og þróun Strandabyggðar sem samfélags næstu áratugina byggi á því sem við ákveðum að gera núna í kjölfar þessara kosninga. Og gleymum því ekki, að framtíðin byggir líka á því sem við ákveðum að gera ekki!
Við erum tilbúin til átaks og aðgerða til að efla Strandabyggð. Til þess munum við nýta allan okkar bakgrunn, reynslu, þekkingu, tengsl, verkvit, hugvit og innsæi.
Strandabandalagið er pólitískt afl fólks með ólíkan pólitískan bakgrunn. Við virðum lýðræðið, við getum skipst á skoðunum og haft ólíka sýn, en við sameinumst um okkar leiðir. Allar okkar greinar og pistlar eru t.d. yfirfarðar af fólkinu á listanum, áður en nokkuð er birt. Þetta teljum við mikilvægt.
Við erum ekki:
-
Sérhagsmunasamtök
-
Handbendill einstaklinga eða fyrirtækja
-
Skuldbundin neinum hefðbundnu pólitísku flokkanna á Íslandi
-
Bundin hugmyndafræði gamalla flokka eða flokksafla
Okkar sýn er fyrst og fremst miðuð við hagsmuni Strandabyggðar og þess fólks sem þar býr og vill búa. Við höfum unnið heilshugar að heildarhagsmunum íbúa Strandabyggðar undanfarin fjögur ár og viljum gera það áfram.

Framtíðin er björt!
Framtíðarsýn á að gefa okkur mynd af því samfélagi sem við viljum sjá í framtíðinni. Framtíðarsýn Strandabyggðar á að ná utan um þá hagsmuni sem byggja þetta samfélag. Við teljum að eftirfarandi atriðið þurfi að vera hluti af okkar framtíðarsýn:
-
Húsnæðisframboð hefur aukist og á hverju ári bætast við 3-5 íbúðir
-
Þjónustukjarni fyrir aldraða mun rísa á næstu 10-15 árum
-
Hótelbygging og efling innviða, þjónustu og afþreyingar mun verða að veruleika á
næstu 3-5 árum -
Fjölgun íbúa fylgir auknu húsnæðisframboði en þarf að vera amk. 5-10 manns á ári næstu
5-10 árin -
Strandabyggð mun efla samstarf og samtal við Súðavíkurhrepp, Kaldrananeshrepp, og Árneshrepp, með sameiningu í huga
-
Tónlistarnám verður aftur komið á í Strandabyggð á fyrri hluta nýs kjörtímabils